Fara á efnissvæði

Vinnustofa um Heilsueflandi vinnustað - Sköpum saman heilsueflandi vinnustaðamenningu

Vel heppnuð vinnustofa Heilsueflandi vinnustaða var haldin í húsnæði VIRK miðvikudaginn 16. nóvember. 

Fulltrúar frá heilsueflandi vinnustöðum tóku virkan þátt í umræðum og hugmyndavinnu. Niðurstöður úr þeirri vinnu má sjá hér að neðan.

  1. Hafið þið góð ráð til að búa til traust og sálfélagslegt öryggi innan stýrihópsins sem væntanlega er samsettur er af fulltrúum ólíkra deilda/sviða?

2. Hvernig hefur tekist til að fá bæði stjórnendur og starfsfólk til að axla ábyrgð og koma að innleiðingu og framkvæmd Heilsueflandi vinnustaðar?

3. Til hvaða úrræða/aðgerða hefur vinnustaðurinn gripið sem hafa heppnast vel?

4. Hefur vinnustaðurinn valið einhverjar aðgerðir í tengslum við sálfélagslega þætti, hvað hefur það verið og hvernig hefur það tekist? Ef ekki – eruð þið með einhverjar hugmyndir að aðgerðum? (til dæmis í tengslum við gátlistana vellíðan og starfshætti, viðmið sem lúta að til dæmis sjálfræði, trausti, streitu, virðingu, samskipti)

5. Hvernig er hægt að efla og styrkja heilsueflandi vinnustaði enn frekar og hvaðan ætti sá stuðningur að koma?

Fulltrúum frá heilsueflandi vinnustöðum er boðið til vinnustofu um framkvæmd Heilsueflandi vinnustaða. Tilgangurinn er að deila góðum hugmyndum, fá nýjar, finna út hvað virkar vel og skapa saman heilsueflandi vinnustaðamenningu.

Á vinnustofunni kynnum við örstutt nýja vefsíðu og nýjungar á heilsueflandi.is en áherslan verður á spjalli og samvinnu þátttakenda. Boðið verður upp á morgunhressingu.

Skráning hér


Velkomið er að fleiri en einn komi frá hverjum vinnustað.

Vinnustofunni stýra Inga Berg Gísladóttir frá embætti landlæknis, Ingibjörg Loftsdóttir og Líney Árnadóttir frá VIRK.