Fara á efnissvæði

Heilsueflandi forysta og vellíðan í starf

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu Heilsueflandi fjallar um forystu og vellíðan í starfi.

 

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu fjallar um forystu og vellíðan í starfi.

Mikilvægt er að leiðtogar þekki leiðir til að efla heilsu á vinnustað og nýti tækifæri til að draga úr vanlíðan í starfi. Rannsóknir sýna að samskipti og áherslur leiðtoga hafa afgerandi áhrif á vellíðan starfsfólks. Sannreynd þekking um heilsueflandi forystu byggir á rannsóknum frumkvöðla á því sviði og sýnir að sálfélagslegir þættir á vinnustað tengjast starfsánægju, vellíðan og geta virkað sem forvarnir kulnunar í starfi. Sjálfræði í starfi og áhrif á eigin störf geta verndað starfsmann gegn neikvæðum áhrifum álags og sama á við um félagslegan stuðning.

Í erindinu kynnir hún tillögu að líkani sem byggir á sannreyndri þekkingu um heilsueflandi forystu með heildrænni nálgun sem eflir heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan þar sem áhersla er á

  1.  sjálfræði og gagnkvæman stuðning
  2. persónulegan styrk og innri starfshvöt 
  3. sameiginlegan tilgang og skýra ábyrgðarskyldu.

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu.

Upptaka af fundinum hér að neðan:

Spila myndband