Rafræn vinnustofa um Heilsueflandi vinnustað - Sköpum saman heilsueflandi vinnustaðamenningu
Fulltrúum frá heilsueflandi vinnustöðum var boðið til rafrænnar vinnustofu um framkvæmd Heilsueflandi vinnustaða.
Fulltrúum frá heilsueflandi vinnustöðum var boðið til rafrænnar vinnustofu um framkvæmd Heilsueflandi vinnustaða. Tilgangurinn var að deila góðum hugmyndum, fá nýjar, finna út hvað virkar vel og skapa saman heilsueflandi vinnustaðamenningu. Á vinnustofunni var jafnframt kynnt örstutt ný vefsíða Heilsueflandi vinnustaða og nýjungar á heilsueflandi.is.
Vinnustofunni stýrðu Inga Berg Gísladóttir frá embætti landlæknis, Ingibjörg Loftsdóttir og Líney Árnadóttir frá VIRK.
Áhersla var á samtal og upplýsingagjöf milli þátttakenda og má sjá afraksturinn hér að neðan.
1. Hafið þið góð ráð til að búa til traust og sálfélagslegt öryggi innan stýrihópsins sem væntanlega er samsettur er af fulltrúum ólíkra deilda/sviða?
2. Hvernig hefur tekist til að fá bæði stjórnendur og starfsfólk til að axla ábyrgð og koma að innleiðingu og framkvæmd Heilsueflandi vinnustaðar?
Ef ykkar vinnustaður er ekki kominn af stað í innleiðingunni – hverju teljið þið að þurfi sérstaklega að huga að hér?
3. Til hvaða úrræða/aðgerða hefur vinnustaðurinn gripið sem hafa heppnast vel?
Ef ekki er byrjað að velja aðgerðir til að framkvæma á ykkar vinnustað, eru þið þá með tillögur/hugmyndir sem þið teljið að gætu heppnast vel?
4. Hefur vinnustaðurinn valið einhverjar aðgerðir í tengslum við sálfélagslega þætti, hvað hefur það verið og hvernig hefur það tekist? Ef ekki – eruð þið með einhverjar hugmyndir að aðgerðum? (til dæmis í tengslum við gátlistana vellíðan og starfshætti, viðmið sem lúta að til dæmis sjálfræði, trausti, streitu, virðingu, samskipti)
5. Hvernig er hægt að efla og styrkja heilsueflandi vinnustaði enn frekar og hvaðan ætti sá stuðningur að koma?