Gátlistar og viðmið
Gátlistar Heilsueflandi vinnustaða eru átta talsins og innan þeirra misjafnlega mörg viðmið. Í sumum tilfellum er viðmiðunum skipt í kafla til að auðvelda yfirferð.
Hér að neðan er mynd af einu viðmiði og kvarðanum sem er notaður til að skora viðmiðin.
- Leiðbeinandi upplýsingar eða nánari útskýringar er hægt að skoða með hverju viðmiði með því að smella á „Ítartexta“.
- Þegar vinnustaður mátar sig við viðmið og staðsetur stöðu vinnustaðar á kvarðanum er gott að skrá skýringar inni á „Skrá stöðu/aðgerð“
- Séu fulltrúarnir í stýrihópnum sammála um að viðmiðið eigi ekki við á vinnustaðnum geta þeir valið að blokkera það með því að haka við „Viðmið á ekki við“.
Kvarði
Viðmið eru metin á kvarðanum 0 til 5. Kvarðinn mælir hversu vel vinnustaðurinn hefur tileinkað sér hvert viðmið fyrir sig.
Skorun viðmiða
- Stýrihópurinn sér um að skora viðmiðin
- Farið er yfir hvert viðmið og núverandi staða metin.
- Gott er að dreifa yfirferð viðmiða á nokkra fundi.
- Þegar viðmið eru skoruð í fyrsta sinn er dregin grunnlína fyrir hvern gátlista fyrir sig.
- Sum viðmið er auðvelt að skora en önnur krefjast huglægara mats.
- Ýmsar upplýsingar frá vinnustaðnum geta nýst við skorun viðmiða svo sem starfsmannakannanir, mannauðsstefnur, upplýsingar frá öryggisnefnd, áætlun um öryggi og heilbrigði starfsfólks o.s.frv.
Gott að hafa í huga
- Tilgangurinn er að finna hvaða atriði er hægt að vinna með til að bæta vellíðan á vinnustaðnum. Tilgangurinn er ekki að láta vinnustaðinn líta betur út en raunin er.
- Fulltrúar stýrihóps ættu að leggja sig fram við að sýna umburðarlyndi, skilning og heiðarleika við skorun viðmiða.
- Niðurstaðan er fyrir vinnustaðinn og er ekki borin saman við niðurstöður annarra vinnustaða.