Fara á efnissvæði

Aðgerðaáætlun

Þegar markmið hafa verið sett er ákveðið hvaða leiðir vinnustaðurinn ætlar að fara til að ná þeim og aðgerðir skráðar.

    • Hvert er fyrsta skrefið?
    • Hvað tekur svo við?
    • Hverjir bera ábyrgð?
    • Hvenær er markmiðinu náð?
    • Hver er ávinningur/árangurinn?
    • Hvernig er hægt að halda tilteknu markmiði áfram?

 

Fyrstu áherslur

Tilvalið er að byrja á að leggja áherslu á aðgerðir/viðburði sem:

    • Höfða til sem flestra á vinnustaðnum.
    • Sameina starfsfólk.
    • Eru einföld í framkvæmd.
    • Starfsfólk hefur aðkomu að.
    • Eru stutt og hnitmiðuð.
    • Eru skemmtileg.

 

Þá er æskilegt að skrá meginmarkmiðin undir „Mínar upplýsingar“ til að hafa þau aðgengileg öllum sem koma að verkefninu og líka gott ef breytingar verða á stýrihópnum.

 

Aðgerðaráætlun