
Heilsueflandi vinnustaður
Heilsueflandi vinnustaðður er sameiginlegt verkefni vinnuveitenda, starfsfólks og samfélagsins. Leitað er leiða til að bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi, hvetja til virkrar þátttöku og stuðla að þroska og vellíðan einstaklingsins.
Heilsueflandi vinnustaður hefur það að markmiði að stuðla að góðri heilsu og vellíðan starfsfólks. Hann byggir starfsemi sína á viðmiðum um Heilsueflandi vinnustaði og nýtir til þess gagnvirkt verkfæri á vefnum heilsueflandi.is. Viðmiðin á vefnum eru aðgengileg öllum vinnustöðum á landinu án endurgjalds.
Á Heilsueflandi vinnustað er lögð áhersla á
- Hollt mataræði
- Stjórnunarhætti sem styðja við heilsueflingu
- Vellíðan starfsfólks
- Starfshætti sem stuðla að vellíðan og hæfilegu álagi
- Hreyfingu og útiveru eftir því sem við á
- Öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi
- Áfengis-, tóbaks- og vímuefnalausan vinnustað
- Umhverfisvernd
Af hverju heilsueflandi?
Flest verjum við stórum hluta vökutíma okkar í vinnunni. Það er því mikilvægt að vinnustaðir bjóði upp á heilbrigt vinnuumhverfi og stuðli að heilsueflingu og vellíðan almennt. Vitað er að vinnan er góð fyrir andlega og líkamlega heilsu en einnig er vitað að neikvætt vinnuumhverfi getur leitt til líkamlegs og andlegs heilsufarsvanda og jafnvel brotthvarfs af vinnumarkaði.
Margir halda að heilsueflandi vinnustaður snúist um að allir eigi að fara út að hlaupa, lyfta eða borða ofurhollt en viðmiðin taka ekki einungis á hreyfingu og næringu, heldur öllum þeim þáttum sem rannsóknir sýna að hafi áhrif á heilsu og vellíðan okkar í vinnu. Viðmiðin gefa okkur heildræna sýn á heilsu sem allir vinnustaðir ættu að geta tileinkað sér, vinnustað sínum og starfsfólki til hagsbóta.
Fyrir hverja er Heilsueflandi vinnustaður?
Heilsueflandi vinnustaður hentar fyrir alla vinnustaði óháð stærð, atvinnugrein eða staðsetningu. Hver vinnustaður getur nýtt viðmið Heilsueflandi vinnustaðar út frá sínum þörfum, forsendum og möguleikum.
Ávinningur vinnustaða af því að huga að heilsu starfsfólks er óumdeildur og getur kristallast í eftirfarandi atriðum. Ávinningur starfsfólks getur að sama skapi verið umtalsverður og sjá má dæmi um það hér fyrir neðan.
Ávinningur vinnustaðar getur falist í:
Meiri starfsánægju
Sterkari liðsheild
Fjárfestingu í mannauði
Minni líkum á veikindum
og slysum
Eftirsóknarverðari vinnustað
Minni starfsmannaveltu
Aukinni sköpunargleði
Aukinni helgun í starfi
Bættri ímynd
Bættum afrakstri
Ávinningur starfsfólks getur falist í:
Aukin vellíðan í starfi og meiri starfsánægja
Bætt heilsa
Bætt andleg líðan
Aukin líkamleg færni
Aukin helgun í starfi
Meira traust og sjálfræði í starfi
Meiri hæfni og áhugi
Bætt félagsleg tengsl og samskipti á vinnustað
Jákvæð áhrif á fjölskyldu og umhverfi
Tilurð viðmiðanna
Viðmiðin fyrir Heilsueflandi vinnustað voru unnin af sérfræðingum VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins. Við gerð þeirra var horft til rannsókna og fyrirmynda erlendis frá, viðmiða embættis landlæknis fyrir Heilsueflandi skóla og Heilsueflandi samfélög, auk heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Viðmiðin voru rýnd af sérfræðingum á hverju sviði svo sem á sviði næringar og hreyfingar hjá embætti landlæknis. Viðmið sem lúta að stjórnun og starfsháttum voru rýnd af stjórnendum, mannauðsstjórum og ráðgjöfum úr atvinnulífinu.
Þau voru loks prufukeyrð hjá tíu ólíkum vinnustöðum sem valin voru úr hópi 70 umsækjanda auk þess að vera prufukeyrð hjá VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlitinu. Öll þessi rýni skilaði sér í gagnlegum útfærslum á viðmiðunum sem þurfa þó að vera í stöðugri endurskoðun.
Heimsmarkmiðin
Öll viðmið í gátlistum Heilsueflandi vinnustaðar hafa verið tengd við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Hægt er að skoða hvaða heimsmarkmiðum hvert og eitt viðmið í gátlistunum tengist. Jafnframt er hægt að skoða út frá heimsmarkmiðunum, hvaða viðmið í ólíkum gátlistum tengjast hverju heimsmarkmiði fyrir sig.